2014-04-01 19:00:00
Viðvörun um eld í frakt
Boeing 777-300 frá KLM Royal Dutch Airlines var í 28.000 fetum skammt frá Bangkok á leið frá Singapore til Amsterdam
þegar upp kom viðvörun um eld í farangursrými. Ákveðið var að lenda á Suvarnabhumi-flugvellinum í Bangkok og losaði
vélin sig við eldnseyti áður en hún lenti hálftíma síðar.
Neyðarteymi kom til móts við vélina en við skoðun fundust engin ummerki um eld, reyk né hita. Farþegar um borð voru fluttir á hótel þar sem viðgerð þurfti að fara fram á brunakerfinu í vélinni.
Vélin náði að fara aftur í loftið 21 klukkustund eftir að hún lenti í Bangkok og mun ná til Amsterdam með 22 klukkutíma seinkun.

14 APR
Delta - Hætt við flugtak2 APR
Lufthansa - Vökvakerfi2 APR
US Airways - Slökkt á hreyfli