2014-08-28 13:50:00
Bilun í vökvakerfi
Boeing 777-200 frá British Airways á leið frá London Gatwick til Las Vegas var í 35.000 fetum, skammt norðvestur
af Glasgow, þegar flugmenn vélarinnar ákvaðu að snúa við eftir að bilun í vökvakerfi kom upp.
Vélin lenti aftur á Gatwick um 2:50 klukkustundum eftir flugtak og var fluginu aflýst. Farþegar eru sagðir hafa kvartað mikið á samfélagsmiðlum á borð við Twitter þar sem þeir sögðu að algjör ringulreið hafi skapast og mikill skortur á upplýsingum frá flugfélaginu.

14 APR
Delta - Hætt við flugtak2 APR
Lufthansa - Vökvakerfi2 APR
US Airways - Slökkt á hreyfli