2015-09-07 12:05:00
Reykur/eldur í nefhjóli
Airbus A320 vél frá Air India var í aðflugi að flugvellinum í Delhi eftir flug frá Varanasi þegar
flugmenn tilkynntu um bilun í vökvakerfi en vélin hélt áfram uns hún lenti. Þegar vélin yfirgaf
brautina kom upp reykur frá hjólastelli vélarinnar og var því ákveðið að rýma vélina strax og yfirgáfu
farþegar vélina niður um neyðarrennibrautir.
Samkvæmt heimildum frá flugvellinum er talið að reykur hafi komið upp í nefhjóli vélarinnar. Að minnsta kosti fimm farþegar slösuðust þegar vélin var rýmd.
Samkvæmt heimildum frá flugvellinum er talið að reykur hafi komið upp í nefhjóli vélarinnar. Að minnsta kosti fimm farþegar slösuðust þegar vélin var rýmd.
14 APR
Delta - Hætt við flugtak2 APR
Lufthansa - Vökvakerfi2 APR
US Airways - Slökkt á hreyfli