nýjasta atvikið

2015-10-06 15:31:00

  • United

  • Boeing 787-8

  • IAH - SFO

  • yfir New Mexico

Flugmaður missti meðvitund

Dreamliner-vél af gerðinni Boeing 787-8 frá United Airlines var í 40.000 fetum skammt suðaustur af Alburquerque á leið frá Houston til San Francisco þegar aðstoðarflugmaður vélarinnar missti meðvitund.

Flugstjórinn lenti vélinni á flugvellinum í Alburquerque þar sem vélin lenti 25 mínúturm síðar en þá hafði aðstoðarflugmaðurinn komið til meðvitundar en var samt sem áður fluttur á sjúkrahús við komuna.

Önnur áhöfn var fengin til sem flaug vélinni áfram til San Francisco með 3:30 klst seinkun.
 

  í þessum mánuði

    3 atvik skráð í apríl