nýjasta atvikið

2016-03-27 12:00:00

  • Bek Air

  • Fokker 100

  • KZO - TSE

  • Astana

Lent með ekkert nefhjól

Farþegaþota af gerðinni Fokker 100 frá Bek Air var í aðflugi að flugvellinum í Astana í Kazakhstan eftir flug frá Kzyl-Orda þegar í ljós kom að nefhjól vélarinnar fór ekki niður. Flugmennirnir hættu við aðflugið og fóru yfir viðeigandi gátlista en án árangurs. Vélin lenti 50 mínútum síðar á aðalhjólastellinum með ekkert nefhjól og reyndu flugmennirnir að halda nefinu eins lengi uppi og mögulegt var.

Vélin staðnæmdist að lokum og var hún rýmd samstundis. Engann sakaði en vélin varð fyrir töluverðum skemmdum.
 

  í þessum mánuði

    3 atvik skráð í apríl