2016-10-24 13:15:00
Viðvörun um fast nefhjól
Boeing 757-200 frá United Airlines á leið frá Belfast til Newark-flugvallarins í New Jersey var í flugtaki frá Aldergrove-flugvellinum
þegar flugmenn vélarinnar hættu klifri í 10.000 fetum þegar upp kom viðvörunarljós um að nefhjól hafi ekki farið upp eftir flugtaki.
Flugmennirnir lýstu yfir neyðarástandi og brenndu eldsneyti í tvær klukkustundir áður en vélin lenti aftur á Shannon-flugvellinum.
Vélin fór í lágflug yfir Shannon-flugvöll svo hægt væri að sjá ástandið á nefhjólinu sem virtist vera niðri og í læstri stöðu. Vélin lenti því næst á Shannon skömmu síðar og staðnæmdist á brautinni og var dregin í burtu af brautinni.

14 APR
Delta - Hætt við flugtak2 APR
Lufthansa - Vökvakerfi2 APR
US Airways - Slökkt á hreyfli