2017-02-05 07:34:00
Viðvörun um reyk á salerni
Airbus A320 frá Lufthansa var í 31.000 feta hæð og að hefja aðflug að flugvellinum í Munchen
eftir flug frá Hamborg þegar áhöfnin lét vita um tæknilegt vandamál um borð og fór fram
á beint aðflug að flugvellinum.
Mínútu síðar kom í ljós að um var að ræða viðvörun um reyk á salerni þrátt fyrir að engin ummerki sáust um reyk við skoðun. Ekki var farið fram á forgang í lendingu en flugmennirnir óskuðu samt eftir að fá leyfi til þess að lenda eins fljótt og hægt væri.
Neyðarteymi var í viðbragðsstöðu þrátt fyrir að ekki var um neyðartilfelli að ræða og lenti vélin 10 mínútum síðar.
Vélin var á jörðu niðri á flugvellinum í Munchen í 6 klukkustundir og 45 mínútur áður en hún fór aftur í umferð í leiðarkerfinu.

14 APR
Delta - Hætt við flugtak2 APR
Lufthansa - Vökvakerfi2 APR
US Airways - Slökkt á hreyfli