
American Airlines greiddi 40% lægra verð fyrir þotueldsneyti á seinasta ársfjórðungi ársins 2015
Hagnaður American Airlines á fjórða ársfjórðungi ársins 2015 nam 167 milljörðum króna sem að mestu má þakka lækkunar á verði á þotueldsneyti.
American Airlines segir að um sé að ræða mesta hagnað í sögu flugfélags í heiminum en 40 prósenta lækkun varð á eldsneytisgjöldum félagsins árið 2015 samanborið við árið á undan en tekjur félagsins á fjórða ársfjórðungnum námu 425 milljörðum króna.
Tekjur félagsins á öllu árinu 2015 voru 985 milljarðar króna og segir félagið að um mjög góðar fréttir
að ræða fyrir farþega þar sem flugfargjöld hafa lækkað í verði.
American Airlines segir að fargjöld hafi lækkað að meðaltali um 8,9 prósent að meðaltali árið 2015 m.a.v.
árið á undan en stíf samkeppni frá löndum utan Bandaríkjanna og gengi bandaríkjadollar haldi
verðlækkuninni samt í skefjun.
23. mars 2017
|
Hagnaður Lufthansa Technik Group dróst saman um 9.5 prósent á árinu 2016.
23. janúar 2017
|
Scandinavian Airlines (SAS) hefur staðfest að félagið sé að ganga frá sölu á dótturfélaginu Cimber til írska flugfélagsins CityJet.
27. apríl 2016
|
JetBlue skilaði inn 24 milljarða króna hagnaði á fyrstu þremur mánuðum ársins sem er 45.6 prósent meiri hagnaður frá sama tímabili í fyrra þegar hagnaður félagsins nam 16.9 milljör
1. febrúar 2016
|
Hagnaður American Airlines á fjórða ársfjórðungi ársins 2015 nam 167 milljörðum króna sem að mestu má þakka lækkunar á verði á þotueldsneyti.
29. október 2015
|
Hagnaður JetBlue á þriðja ársfjórðungnum nam 25,4 milljörðum króna sem er tvöfalt meiri hagnaður en á sama tíma í fyrra þegar hagnaður félagsins var 10,1 milljarðar króna en rekst
22. október 2015
|
Southwest Airlines skilaði inn 79 milljarða króna hagnaði á þriðja ársfjórðungi sem er methagnaður fyrir tímabilið í sögu félagsins.
6. maí 2015
|
Töluvert dró úr taprekstri Lufthansa á fyrsta ársfjórðingi ársins m.a.v sama tímabil í fyrra en félagið segir nauðsynlegt sé þó að gera betur.
12. mars 2015
|
Hagnaður Lufthansa dróst saman um 82 prósent árið 2014 en í fyrra skilaði félagið 8 milljarða króna hagnaði en árið 2013 var hagnaðurinn 45 milljarðar.
22. desember 2014
|
Aer Lingus hefur hafnað yfirtökutilboði frá International Airlines Group (IAG) sem á og rekur m.a. British Airways og Iberia.