flugfréttir
Stærsta loftfar heims varð fyrir skemmdum eftir brotlendingu
Airlander 10 er stærsta loftfar heims
Airlander 10, stærsta loftfar heims, varð fyrir skemmdum í gær er loftfarið brotlenti „mjúklega“ með nefið til jarðar á Carlington-flugvelli í sínu öðru tilraunaflugi.
Airlander 10 brotlenti féll til jarðar á mjög litlum hraða en þó með þeim afleiðingum að stjórnklefinn varð fyrir skemmdum.
Hybrid Air Vehicles (HAV), framleiðandi Airlander 10, segir í yfirlýsingu sinni að áhöfn og flugmenn loftfarsins hafi sloppið heilir á húfi.
Loftfarið hafði nýlokið sínu öðru tilraunaflugi sem hafði staðið yfir í 100 klukkustundir en Airlander 10 getur haldist á lofti í 5 sólarhringa
án þess að lenda.
Rannsóknarnefnd flugslysa í Bretlandi staðfesti atvikið en sagði að stofnunin myndi ekki senda rannsóknarteymi á staðinn en framleiðendurnir
munu næstu daga vinna að því að meta skemmdirnar.
Airlander 10 er arftaki HAV 304 loftfarsins sem upphaflega stóð til að smíða fyrir bandaríska flugherinn en það loftfar flaug fyrst
árið 2012 en hætt var við verkefnið árið 2013 og var því ákveðið að hanna nýja útgáfu.
Fyrirtækið Hybrid Air Vehicles ætlar sér að smíða allt að 10 loftför árlega árið 2021.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.