flugfréttir
Fluglögregla verður um borð þegar flug hefst til Kúbu
Fluglögreglur hafa verið notaðar til að tryggja öryggi farþega um borð í flugi í Bandaríkjunum
Ákveðið hefur verið að hafa sérstaka flugöryggisverði um borð á nokkrum flugleiðum til Kúbu þegar farþegaflug hefst þangað en nokkur bandarísk flugfélög hafa fengið úthlutað leyfi til að hefja áætunarflug til Kúbu á næstunni.
Fyrsta bandaríska flugfélagið til að hefja reglubundið áætunarflug til Kúbu mun hefja flug þann 31. ágúst sl. sem er flug JetBlue frá Fort Lauderdale
til Santa Clara en önnur flugfélög í Bandaríkjunum eru í startholunum til að byrja að fljúga þangað á næstu vikum.
Í yfirlýsingu frá bandarískum ferðaöryggisyfirvöldum (TSA) kemur fram að af öryggisástæðum hefur verið ákveðið að öryggisverðir verði um borð sem á ensku eru betur þekktir sem „air marshals“ en ekki kemur fram á hvaða flugleiðum öryggisverðir verða um borð.
TSA segir að þetta muni tryggja öryggi farþega og áhafnar en bandaríska heimavarnaráðuneytið segir að bandarísk stjórnvöld hafi unnið að undarförnu
með yfirvöldum á Kúbu varðandi öryggisgæslu um borð.
Bandarískt stjórnvöld hafa haft fluglögreglu um borð til að koma m.a. í veg fyrir hryðjuverk og flugrán.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.