flugfréttir

Qantas íhugar að fjórfalda Dreamliner-flotann

25. ágúst 2016

|

Frétt skrifuð kl. 13:42

Tölvugerð mynd af Boeing 787-8 í litum Qantas

Qantas er að íhuga að panta enn fleiri Dreamliner-vélar þar sem þær Boeing 787 vélar, sem nú þegar hafa verið afhentar til dótturfélagsins Jetstar, eru að standa sig mjög vel hvað varðar sparneytni sem lækkar rekstarkostnað félagsins.

Jetstar hefur fengið 11 Boeing 787-8 þotur afhentar en Qantas á von á átta Boeing 787-9 þotum á næsta ári og hefur félagið hefur kauprétt á allt að 45 þotum til viðbótar.

„Ég væri til í að taka þær allar. Þessar vélar eiga eftir að verða bylting fyrir Qantas“, sagði Alan Joyce, framkvæmdarstjóri félagsins, í gær í viðtali við Bloomberg.

Alan Joyce, framkvæmdarstjóri Qantas

Qantas tilkynnti á dögunum um methagnað en hreinar tekjur félagsins jukustu um 84% en stjórn Qantas hefur unnið hörðum höndum að því að undanförnu að lækka rekstarkostnað félagsins með því að taka eldri flugvélar úr umferð og skipta þeim út fyrir nýrri og sparneytnari vélum.

Alan Joyce tók fram að með Dreamliner-vélunum munu ýmsar nýjar langflugsleiðir opnast fyrir Qantas og muni félagið m.a. geta hafið flug milli Melbourne og Dallas, milli Perth og London eða Brisbane og Dallas.

Joyce gaf það einnig í skyn að félagið sæi meiri not fyrir fleiri Dreamliner-vélar í stað Airbus A380 risaþotnanna en félagið ætlar ekki að taka við þeim átta A380 þotum sem félagið á eftir að fá afhentar frá Airbus.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga