flugfréttir

Tuttugu MD-80 þotum frá AA flogið í eyðimörkina á einu bretti

- Mesti fjöldi flugvéla sem flugfélag hefur losað sig við á einum degi

26. ágúst 2016

|

Frétt skrifuð kl. 15:17

American Airlines hafði yfir 360 stykki af McDonnel Douglas MD-80 þotunum í flotanum þegar mest var

Ekkert flugfélag hefur losað sig við eins margar flugvélar úr flota sínum á einu bretti á það á einum degi eins og American Airlines sem tók sl. þriðjudag tuttugu McDonnell Douglas MD-80 þotur úr flotanum en félagið mun ekki nota vélarnar meira þar sem þær eru komnar til ára sinna.

Þetta er mesta magn af flugvélum sem flugfélag hefur losað sig við á einum degi en flest flugfélög hafa yfirleitt tekið eina og eina úr umferð um leið og ein ný bætist í flotann til að viðhalda sama flugvélafjölda.

MD-80 vélunum tuttugu var flogið til Roswell flugvélakirkjugarðsins frá 20 mismunandi áfangastöðum í Bandaríkjunum sem eru Tampa, Fort Lauderdale, Raleigh/Durham, Philadelphia, Pittsburgh, Chicago, Nashville, Houston, Dallas, Tucson, Phoenix, Las Vegas, San Bernardino, Colorado Springs, Salt Lake City og Minneapolis.

Vélarnar komu allar saman á Roswell þar sem þær bíða örlaga sinna en ef vélarnar munu ekki seljast og fá nýja eigendur verða þær rifnar niður í brotajárn.

McDonnell Douglas MD-80 þota lendir í Roswell í Nýju-Mexíkó sl. þriðjudag

American Airlines hafði í júní 87 McDonnell Douglas MD-82 og MD-83 þotur í flotanum en félagið ætlar sér að vera búið að fækka þeim niður í 52 stykki fyrir lok ársins og verða því 14 vélar til viðbótar teknar úr umferð í haust.

American Airlines ætlaði að vera búið að losa sig við allar MD-80 þoturnar fyrir árið 2018 en félagið gerir ráð fyrir að þeim verði flogið a.m.k. út sumarið 2018.

MD-80 vélarnar á Flightradar24 á leiðinni í eyðimörkina allar á sama tíma

MD-80 þoturnar hafa verið í flota American Airlines í þrjá áratugi en félagið fékk fyrstu þotuna afhenta þann 4. maí árið 1983 en ári síðar pantaði American Airlines 67 eintök af McDonnell Douglas þotunum með möguleika á 100 til viðbótar.

Vélarnar voru lengi öflugustu vinnuhestarnir í innanlandsflugi American Airlines og lögðu vélarnar undir sig Dallas-Fort Worth flugvöllinn í Texas á níunda og tíunda áratug síðustu aldar.

American hafði stærsta MD-80 flota heims á sínum tíma en þegar mest var hafði félagið yfir 360 eintök af þessari flugvélategund árið 2002 en American Airlines hefur verið að skipta MD-80 vélunum út fyrir nýjar Boeing 737-800 þotur auk Airbus A320 véla.

MD-80 vélarnar 20 komnar saman í Roswell





Al Matter, flugstjóri, og Robert Cornelius, aðstoðarflugmaður, flugu einni af vélunum 20 til Roswell







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga