flugfréttir

Hlíf losnaði af hreyfli á Boeing 737 þotu Southwest

- Brak úr hreyflinum gerði skemmdir á skrokk vélarinnar

28. ágúst 2016

|

Frétt skrifuð kl. 15:56

Vélin var á leið frá New Orlands til Orlando í gær þegar sprenging kom upp í hægri hreyfli

Farþegaþota af gerðinni Boeing 737-700 frá Southwest Airlines þurfti að nauðlenda í Bandaríkjunum eftir að fremsti hluti af hægri hreyfli vélarinnar losnaði af hreyflinum í 31.000 feta hæð yfir Alabama.

Vélin var á leið frá New Orleans til Orlando með 99 farþega um borð og fimm manna áhöfn en þegar vélin var komin í 31.000 fet skammt suður af borginni Mobile í Alabama heyrðist hávær hvellur og kom í ljós að öll hreyflaumgjörðin af CFM56 hreyflinum á hægri væng hafði losnað af.

Brakið úr hreyflinum skall utan í hlið skrokksins og gerði skemmdir á búkinn með þeim afleiðingum að loftþrýstingur um borð féll niður. Vélin byrjaði að hristast að sögn farþega og súrefnisgrímur féllu niður.

Flugmenn vélarinnar ákváðu að lenda í borginni Pensacola í Alabama þar sem vélin lenti gifstusamlega en að sögn farþega stóð áhöfnin sig frábærlega og nefndi einn farþeginn að þau hefðu ekki geta haft betri flugliða um borð.

Ein kona, sem var farþegi í vélinni, sagði að flugstjórinn hefði skömmu síðar sjálfur komið aftur í farþegarýmið og ávarpaði hann farþeganna og sagði að fremsti hluti hreyfilsins hefði losnað af.

Samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) rannsakar nú atvikið sem kallast „uncontained engine failure“ þar sem brak í hreyflinum skaust út úr honum en hreyflar eru hannaðir til þess að reyna að halda braki inn í hreyflinum svo það skjótist ekki í flugvélina sjálfa.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga