flugfréttir

Fyrsta MRJ þotan á leið í flugprófanir í Ameríku snéri við vegna bilunar

28. ágúst 2016

|

Frétt skrifuð kl. 21:13

Mitsubishi Regional Jet vélin (MRJ)

Fyrsta Mitsubishi Regional Jet (MRJ) þotan neyddist til þess að snúa við á leið sinni frá Tókýó til Bandaríkjanna þar sem vélin átti að hefja viðamiklar flugprófanir.

Fyrsta vélin, FT-1, var í ferjuflugi og stóð til að fljúga yfir Rússlands og Alaska en bilun kom upp í kerfi sem stjórnar loftgæðum í farþegarými vélarinnar („Air Management System“) og var því ákveðið að snúa við til Nagoya Airfield flugvallarins rétt hjá Tókýó.

Framleiðandi vélanna, Mitsubishi Aircraft, mun senda fjórar ef þeim fimm tilraunavélum, sem smíðaðar hafa verið, til Grant County flugvallarins í Washington-fylki en stór hluti flugprófanna munu fara fram í Bandaríkjunum þar sem reglur um tilraunaflug í Japan eru mjög strangar og takmarkaðar.

Mitsubishi Aircraft segir að framleiðandinn muni ganga úr skugga um hvort að einhver villa eða bilun hafi valdið því að kerfið hætti að virka eða hvort að vandamálið liggi í stjórnskjá sem tengist kerfinu.

Ekki er vitað hvenær önnur tilraun verður gerður til að fljúga MRJ-þotunni aftur til Bandaríkjanna en ný dagsetning verður sennilega ákveðin eftir að niðurstöður úr bilanagreiningu á kerfinu liggja fyrir..

Japanska flugfélagið ANA (All Nippon Airways) verður fyrsta flugfélagið til að fá Mitsibishi Regional Jet þotuna afhenta en upphaflega stóð til að afhenda vélina eftir áramót árið 2014 en því var frestað til sumarsins 2018.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga