flugfréttir

Seattle, Stokkhólmur og Köben verða breiðþotuáfangastaðir

- Daglegt morgunflug til Köben með Boeing 767 eftir áramót

29. ágúst 2016

|

Frétt skrifuð kl. 11:55

Boeing 767 („Svörtuborgir“) í lendingu í Minneapolis

Breiðþotum í flota Icelandair á eftir að fjölga eftir áramót en eins og áður hefur komið fram gekk Icelandair frá kaupum á tveimur Boeing 767 þotum til viðbótar í vor sem munu bætast við flotann í vetur.

Með því mun Boeing 767 vélunum fjölga úr tveimur í fjórar breiðþotur næsta sumar en jafnframt þýðir það fjölgun breiðþotuáfangastaða í leiðarkerfi Icelandair.

Stokkhólmur og Kaupmannahöfn eru meðal þeirra borga sem Icelandair mun fljúga til með Boeing 767 breiðþotunum og það daglega til Köben.

Icelandair mun byrja að nota Boeing 767 í Kaupmannahafnarflugið á laugardögum og sunnudögum strax í vetur frá og með 12. nóvember en hingað til var upphaflega gert aðeins ráð fyrir breiðþotuflugi á laugardögum til CPH.

„Svörtuborgir“ í Keflavík þann 2.maí í vor

Eftir áramót verður flogið daglega til Kaupmannahafnar með Boeing 767 frá og með 2. febrúar 2017 og er um að ræða morgunflugið, flug FI204, sem fer frá Keflavík kl. 8:00 og kl. 13:20 frá Kaupmannahöfn sem flug FI205.

Þá mun Icelandair frá og með 17. febrúar 2017 fljúga þrisvar í viku til Stokkhólms með Boeing 767 breiðþotunum, á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum.

Seattle verður einnig gerður að breiðþotuáfangastað en frá og með 17. febrúar verður flogið á sunnudögum, þriðjudögum og föstudögum til SEA með Boeing 767 fram til 2. maí 2017.

Icelandair flaug fyrsta flugið með Boeing 767 vélunum þann 1. maí í vor en fyrsti áfangastaðurinn var New York JFK og var flogið þangað með TF-ISN („Svörtuborgir“) en 9 dögum síðar kom seinni Boeing 767 þotan til landsins, þann 10. maí, sem var TF-ISO en sú vél fékk nafnið „Hlöðufell“.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga