flugfréttir
Kínverjar taka í notkun sína fyrstu hreyflaverksmiðju
- Aero-Engine Group of China er nýr framleiðandi á hreyflum í Kína
Kína hefur hingað til látið þróa hreyfla í vestrænum löndum frá framleiðendum á borð við General Electric og Pratt & Whitney
Kínverjar hafa tekið í notkun fyrstu flugvélahreyflaverksmiðjuna í Kína en með henni er vonast til að hægt verði að veita vestrænum hreyflaframleiðendum samkeppni.
Kínverska fyrirtækið Aero-Engine Group var stofnað af hópi nokkurra fyrirtækja sem sérhæfa sig í framleiðslu á hreyflum en búið er að setja
876 milljarða króna fjármagn í rekstur verksmiðjunnar sem mun koma til með að smíða bæði hreyfla fyrir herflugvélar og farþegaflugvélar.
Kína hefur nú þegar framleidd flugvélar um nokkurt skeið en brösulega hefur gengið að hefja framleiðslu og þróun á hreyflum
í landinu sem uppfylla alþjóðakröfur og staðla.
Kína hefur hingað til látið þróa hreyfla í vestrænum löndum frá framleiðendum á borð við General Electric og Pratt & Whitney
en kínverksar herflugvélar hafa fengið hreyfla frá Rússum.
Xi Jinping, forseti Kína, segir að um byltingu sé að ræða fyrir kínverskan iðnað með tilkomu verksmiðjunnar og með fyrirtækinu
verði brotið blað í flugvélaiðnaðinum í Kína.
Meðal þeirra sem eiga hlut í Aero-Engine Group er m.a. kínverska ríkisstjórnin, Aviation Industry Corp of China (AVIC) og kínverski
flugvélaframleiðandinn COMAC.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.