flugfréttir
LATAM fær sína fyrstu Airbus A320neo
Fyrsta Airbus A320neo þotan fyrir LATAM við flugprófanir fyrr í ágúst
Suðurameríska flugfélagið LATAM hefur fengið afhenta sína fyrstu Airbus A320neo þotu en félagið tók við vélinni við athöfn hjá Airbus í Toulouse í gær.
LATAM er fyrsta flugfélagið í Ameríku (bæði Suður- og Norður Ameríku) sem fær Airbus A320neo vélina afhenta og er félagið fimmta flugfélagið í heiminum
sem fær A320neo á eftir Lufthansa, IndiGo, GoAir og Pegasus Airlines.
LATAM var fyrsta flugfélagið í Suður-Ameríku til þess að panta Airbus A320neo vélina árið 2011 en önnur flugfélög í álfunni sem eiga von á vélinni
er m.a. kólumbíska flugfélagið Avianca.
Fabrice Bregier, framkvæmdarstjóri Airbus ásamt stjórnendum LATAM
LATAM ætlar sér að nota fyrstu Airbus A320neo vélarnar í innanlandsflugi milli borga á borð við Brasilia, Belo Horizonte, Campo Grande, Florianópolis,
Porto Alegre, Recife, Sao Paulo og Rio de Janeiro.
LATAM varð til við samruna LAN Airlines og TAM Linhas Aéreas og er flugfélagið stærsta flugfélag Suður-Ameríku með yfir 300 þotur í flotanum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.