flugfréttir
Hjólastell brotnaði undan Boeing 737 í harkalegri lendingu
Atvikið átti sér stað í Indónesíu sl. mánudag
Fraktþota af gerðinni Boeing 737-300F lenti mjög harkalega á flugvelli einum í Indónesíu fyrr í vikunni en sökum þess hversu hörð lending var þá brotnaði vinstra hjólastellið undan vélinni á meðan hægra stellið féll saman.
Vélin, sem var frá indónesíska flugfélaginu Trigana Air Service, var að lenda á flugvellinum í bænum Wamena eftir flug frá Jayapura sl. mánudag (12. september)
þegar atvikið átti sér stað en um borð voru þrír í áhöfn og 15,3 tonn af frakt.
Atvikið af lendingunni náðist á meðfylgjandi myndband en á þeim tíma sem vélin sést koma eftir brautinni var hjólastellið þegar farið af og sést hún koma rennandi eftir
brautinni á maganum með nefhjólið uppi.
Vélin staðnæmdist að hluta til á brautinni og að hluta til utanbrautar við hægri jaðar flugbrautarinnar en engann um borð sakaði.
Fraktin um borð í vélinni samanstóð af 14 tonnum af díselolíu í tunnum og þá var um 1,3 tonn af sykri og hrísgrjónum um borð í vélinni.
Ekki er enn vitað hvað olli atvikinu en indónesísk flugmálayfirvöld hafa hafið rannsókn á því.
Fleiri myndir:
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.