flugfréttir
Þegar búið að ráða 35 nýja flugmenn hjá Icelandair fyrir næsta sumar
- Námskeið fyrir nýja flugstjóra hefjast í nóvember
„Svörtuborgir“ (TF-ISN) á Schiphol-flugvellinum í Amsterdam þann 13. september
Icelandair hefur ráðið 35 nýja flugmenn til starfa sem munu koma til með að fljúga farþegaþotum félagsins á næstu sumarvertíð árið 2017 en á móti eru yfir 62 flugmenn sem munu láta af störfum hjá félaginu.
Samkvæmt fréttabréfi FÍA (Félags íslenskra atvinnuflugmanna) þá stendur ráðningarferlið yfir fram að áramótum
en nú þegar hafa yfir 20 flugmenn verið þjálfaðir á Boeing 757 vélarnar og mun þjálfun ljúka eftir áramót en að því loknu munu
þeir taka sæti flumanns í stjórnklefanum.
Ekki er enn vitað hversu margir flugmenn verða ráðnir til starfa í vetur en sl. vetur voru 62 flugmenn ráðnir til starfa sem er met hjá
Icelandair.
Í nóvember og desember verða haldin flugstjórnámskeið en einnig er ekki vitað hversu margir nýir flugstjórar („captain in command“) munu bætast við fyrir
sumarið 2017 en Icelandair hefur lagt töluverða vinnu í að meta hver þörfin er fyrir nýja flugmenn og flugliða hverju sinni sem fer eftir útreikningum á áhöfnum.
Mynd af 42 af af þeim 62ja manna flugmannaráðningu við útskrift eftir þjálfun vorið 2016 ásamt Þórhalli Hauki Reynissyni yfirflugstjóra Icelandair. Mynd: Sigurður Anton Ólafsson
Við næstu mánaðarmót er gert ráð fyrir að 62 flugmenn muni láta af störfum eftir sumarvertíðina en þótt um sé að ræða mikinn fjölda
þá er þetta samt minni hópur en hefur látið af störfum sl. ár eftir sumarvertíð en árstíðarsveiflur verða mun minni í ár þar sem
leiðarkerfi Icelandair hefur aldrei verið eins umsvifamikið og þennan vetur.
Metfjöldi flugliða starfaði hjá Icelandair í sumar
Þá voru um 1.200 flugliðar sem störfuðu við leiðarkerfi Icelandair í sumar og var mikil aðsókn í flugliðastarfið þar sem metfjöldi
nýrra flugliða var tekinn inn í tengslum við fjölgun flugvéla en Icelandair tók í vor í notkun tvær Boeing 767 breiðþotur
en næsta sumar mun breiðþotufjöldinn fjölga upp í fjórar Boeing 767 þotur.
Icelandair hefur í sumar flogið til 41 borga í farþegaflugi með Boeing 757 og 767 flotanum en eftir október munu 16 sumaráfangastaðir detta út úr leiðarkerfinu
tímabundið yfir veturinn og ein borg bætast við sem mun fækka áfangastöðunum niður í tuttugu og sex.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.