flugfréttir

Hawaiian íhugar að hefja flug til Evrópu með Airbus A330neo

24. september 2016

|

Frétt skrifuð kl. 23:28

Hawaiian Airlines ætlar að fjölga áfangastöðum í leiðarkerfinu á annan tug á næstunni

Hawaiian Airlines er að skoða möguleikana á því að hefja beint flug til Evrópu með þeim sex Airbus A330-800neo þotum sem félagið pantaði árið 2014.

Mark Dunkerley, framkvæmdarstjóri Hawaiian Airlines, segir að félagið sé að skoða hvort A330neo þoturnar munu bjóða upp á það flugþol sem til þarf til að fljúga beint frá Honolulu til London en fjarlægðin þar á milli er 11.600 kílómetrar en A330-800neo mun koma til með að hafa flugþol upp á 13.900 kílómetra.

Hawaiian hefur í dag sjö Boeing 767-300ER þotur í flotanum en þeim verður skipt út fyrir Airbus A330-800neo en fyrsta vélin mun koma í flotann árið 2019.

Á næsta ári mun Hawaiian Airlines þó fá sína fyrstu Airbus A321neo sem verður notuð í áætlunarflugi til vesturstrandar Bandaríkjanna en félagið á von á sextán vélum af þeirri gerð.

Hawaiian Airlines ætlar sér að stækka leiðarkerfi sitt umtalsvert á næstunni og bæta við á annan tug áfangastaða og þar á meðal bæta við nýjum borgum á austurströnd Bandaríkjanna auk þess sem stefnt er að því að fjölga áfangastöðum í Kanada.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga