flugfréttir
Saudi ætlar að panta yfir 60 þotur frá Boeing og Airbus
Boeing 777 þota Saudi Arabian Airlines
Saudia Arabian Airlines segir að til standi að festa kaup á 63 farþegaþotum til viðbótar á næstunni í þeim tilgangi að leysa af hólmi eldri þotur í flotanum.
Sulaiman Al Hamdan, samgönguráðherra Sádí-Arabíu, segir að til standi að panta 28
þotur frá Boeing og 35 þotur frá Airbus en pantanirnar munu samanstanda
af fimmtán Boeing 777-300ER þotum, þrettán Dreamliner-þotum og
35 þotum af gerðinni Airbus A320neo og A321neo.
Saudi Airlines, sem hefur 119 þotur í flota sínum í dag í farþegaflugi, ætlar sér að
vera komið með tvö hundruð flugvélar fyrir árið 2020 en talið er að 30 milljónir
farþega muni fljúga með félaginu á þessu ári.
Í dag á Saudi Arabian von á 26 nýjum þotum en tuttugu þeirra eru af gerðinni Airbus
A330-300 og þá á félagið eftir að fá eina Boeing 777-300ER og fjórar Dreamliner-vélar
af gerðinni Boeing 787-9.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.