flugfréttir

Yngsti kapteinn í heimi er aðeins 26 ára

- Flýgur fyrir easyJet og hefur m.a. flogið til Íslands

26. september 2016

|

Frétt skrifuð kl. 07:38

Kate McWilliams er 26 ára og var nýlega gerð að flugstjóra hjá easyJet

Bresk stúlka, sem er 26 ára og flýgur fyrir easyJet, var á dögunum gerð að flugstjóra hjá félaginu en talið er að hún sé bæði yngsti kvenmaður í heimi sem hefur orðið „pilot in command“ og yngsti flugmaðurinn sem gerður hefur verið að kapteini.

Kate McWilliams segir að hún sé spurð um aldur nánast á hverjum degi, bæði af farþegum og áhafnarmeðlimum og vekur það aðdáun hjá flestum yfir því hversu ung hún sé m.a.v. að vera flugmaður.

Kate hóf flugferil sinn aðeins 13 ára gömul árið 2003 og fór í sitt fyrsta sólóflug 16 ára en hún hóf atvinnuflugmannsferil sinn hjá CTC Aviation í Southampton er hún var 19 ára.

Í maí árið 2011 byrjaði hún að fljúga fyrir easyJet er hún var 21 árs sem aðstoðarflugmaður og flýgur hún bæði Airbus A319 og A320 þotum frá Gatwick-flugvelli til yfir 100 áfangastaða en hún hefur m.a. flogið til Íslands.

Kate flýgur til yfir 100 áfangastaða frá Gatwick-flugvelli

Kate segir að það komi varla fyrir að hún fljúga til sama áfangastaðarins tvisvar í mánuði þar sem easyJet flýgur til fjölmargra staða frá Gatwick-flugvelli en einn daginn flýgur hún til Tel Aviv, næsta til Marrakesh í Marrokó og til Keflavíkurflugvallar þess vegna því næst.

Kate segir að sem barn hafi hún ekki spáð mikið í flugið en þegar hún fór í fyrsta flugtímann var ekki aftur snúið. - „Ég elska að fljúga fyrir easyJet og ég er mjög stolt yfir því að vera núna orðin flugstjóri“, segir Kate.

Aðeins um 5% flugmanna hjá easyJet eru kvenmenn en lágfargjaldafélagið breska ætlar sér að auka hlutfall kvenna í stjórnklefanum upp í 12% á næstu tveimur árum.

Kate fór í fyrsta flugtímann sinn 16 ára árið 2006

Julie Westhorp, formaður félags breskra kvenflugmanna (BWPA) segir að árangur og frami Kate eigi eftir að hvetja fleiri konur til þess að fara í flugið.

Talsmaður easyJet segir að allt bendi til þess að Kate sé yngsta kona í heimi sem hafi verið gerð að flugstjóra en Kate hefur fært sig upp flugtímastigann hjá easyJet sl. fimm ár og stóðst á dögunum flugstjóraprófið og færðist þar af leiðandi yfir í vinstra sætið.

Í seinustu viku flaug Kate frá Gatwick til Möltu með Luke Elsworth sem fyrr á þessu ári varð yngsti atvinnuflugmaður Bretlands, aðeins 19 ára að aldri.

Kate Wiliams ásamt Luke Elsworth sem er yngsti atvinnuflugmaður Bretlands







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga