flugfréttir
Boeing nálgast 500 Dreamliner-þotur
Stélhlutinn á fimmhundruðustu Dreamliner-vélinni í litum Air France
Boeing fer að ná þeim áfanga á næstu dögum að ýta út úr samsetningarsal fimmhundruðustu Dreamliner-vélinni en sú vél er nú að taka á sig mynd í samsetningu í Everett í Washington.
Fimmhundruðasta Dreamliner-þotan er vél sem verður afhent til Air France en miðhluti og stélhluti
vélarinnar voru ferjaðir þann 5. september frá Boeing-verksmiðjunum í Suður-Karólínu
til Washington-fylkis.
Vélin, sem er af gerðinni Boeing 787-9, verður afhent til Air France þann 28. nóvember og er þetta
fyrsta Dreamliner-þotan sem flugfélagið franska mun fá afhent en Air France á von á fjórtán
Boeing 787-9 þotum.
Miðhluti búksins komið fyrir um borð í Dreamlifter, vöruflutningavél Boeing, í Suður-Karólínu
Í október verða 5 ár liðin frá því Boeing afhenti fyrstu Dreamliner-vélina til japanska flugfélagsins
ANA (All Nippon Airways) sem er það flugfélag sem hefur fengið flestar Boeing 787 þotur afhentar.
Boeing hefur í dag afhent 466 Dreamliner-þotur til 43 flugfélaga víðsvegar um heim sem samsvarar
40% af þeim 1.161 eintökum sem pantaðar hafa verið frá upphafi.
Air France mun fá fimmhundruðustu vélina afhenta í nóvember
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.