flugfréttir
Boeing 777X verður fyrsta farþegaþotan með snertiskjám í stjórnklefa
- Boeing velur Rockwell Collins til að þróa snertiskjákerfi
Þær framfarir sem hafa átt sér stað í snertiskjátækni gerir það kleift að óhætt er að nýta hana í stjórnklefum á farþegaþotum
Boeing hefur gert samning við Rockwell Collins um framleiðslu á snertiskjáum í stjórnklefanum á arftaka Boeing 777 þotunnar, Boeing 777X.
Rockwell Collins mun sjá um að þróa og hanna snertiskjákerfi fyrir alla fimm skjánna í stjórnklefanum
en Boeing 777X verður fyrsta farþegaþota í heimi sem mun koma með snertiskjáum.
„Snertiskjáir eru allsstaðar í umhverfinu og við hrósum Boeing fyrir að taka þetta djarfa skref og
verða þeir því brautryðjendur í næstukynslóðar stjórnklefatækni sem Boeing 777X verður útbúin“, segir Kent
Statler, framkvæmdarstjóri yfir tæknideild Rockwell Collins.
Tölvugerð mynd af Boeing 777-9
Snertiskjárnir munu auðvelda flugmönnum að sýsla með upplýsingar og flýta fyrir aðgerðum
en snertiskjákerfið í Boeing 777X verður með „multi-touch“ kerfi sem þýðir að báðir
flugmennirnir munu geta snert skjánna á sama tíma.
Snertiskjárnir munu nema þétta snertingu til að koma í veg fyrir að flugmenn snerti óvart
aðgerðarbeiðni við lausa snertingu og þá verður sérstök tækni í skjánnum sem mun auðvelda
flugmönnum að velja aðgerð í ókyrrð.
Þá verður séð til þess að snertiskjáirnir verða speglunarfríir til þess að tryggja að flugmenn
geti séð á skjánna þrátt fyrir endurskast sólarljóssins en algengt er að hvítu skyrturnar, sem flugmenn
klæðast, speglist í sumum skjáum í stjórnklefanum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.