flugfréttir

Rangir útreikningar fyrir lendingu olli því að Boeing 737 fór út af braut

27. september 2016

|

Frétt skrifuð kl. 15:50

Flugvélin fór út af braut í lendingu í Yogyakarta í Indónesíu í nóvember árið 2015

Rannsóknarnefnd flugslysa í Indónesíu hefur komist að því að rangur útreikningur hjá flugmönnum hafi ollið því að Boeing 737-900ER farþegaþota frá Batik Air fór út af flugbraut í lendingu á flugvellinum í Yogyakarta í Indónesíu í nóvember árið 2015.

Vélin var á leið frá Jakarta til Yogyakarta þann 6. nóvember í fyrra með 168 manns innanborðs að meðtaldri áhöfn en í aðfluginu fengu flugmenn nýjar veðurupplýsingar sem varð til þess að þeir breyttu stillingu á flöpsum í 40 gráður og notuðu „autobrake 3“.

Eftir að þeir urðu varir við skúraflókaský (Cumulonimbus cappilatus) breyttu þeir stillingu á flöppsum yfir á 30 gráður en stilltu „autobrakes“ í hæstu stillingu eftir að þeir fengu að heyra að flugbrautin væri blaut.

Boeing 737-900ER vélin lenti á brautinni þegar 427 metrar voru búnir af vegalengdinni frá brautarbyrjun og var settur mestur mögulegur knývendur á hreyflanna en þegar vélin nálgaðist enda brautarinnar var „autobrake“ yfirtekið af handvirkri bremsu sem var notuð í hámarki.

Þetta varð til þess að vélin fór út af braut og staðnæmdist 80 metrum frá brautarendanum en nefhjól vélarinnar gaf sig og féll nefhlutinn ofan í jörðina.

Í lokaskýrslu sem indónesísk flugmálayfirvöld birtu í dag kemur fram að flugmenn vélarinnar hafi ekki endurútreiknað lendingarvegalengd eftir að þeir breyttu stillingum á flöpsum sem varð til þess að vélin fór út af brautinni.

Fram kemur að öðru leyti hefði vélin alveg átt að geta hemlað m.a.v. aðstæður ef útreikningarnir hefðu verið réttir.

Í kjölfar atviksins gaf Batik Air út fyrirmæli til flugmanna með leiðbeiningum um lendingar á blautum flugbrautum til að fyrirbyggja að atvikið myndi endurtaka sig og þá sérstaklega á flugvellinum í Yogyakarta.

Þá hafa indónesísk flugmálayfirvöld hvatt flugvöllinn í Yogyakarta til þess að mæla ástand brautanna oftar í votviðri og æfa betur björgunar- og neyðarviðbrögð við slysum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga