flugfréttir
Fyrsta Airbus A330neo í lokasamsetningu
Fyrsta Airbus A330-900 þotan í samsetningu í Toulouse í Frakklandi
Lokasamsetning er hafin á fyrstu Airbus A330neo þotunni (Airbus A330-900) í Toulouse en verið er að setja saman þessa stundina vængina við miðjueiningu búksins.
Odile Jubécourt, yfirmaður yfir Airbus A330neo deildinni, segir að verkefni sé á áætlun en vélin, sem
mun koma með Trent 7000 hreyflum frá Rolls-Royce, mun fá vottun haustið 2017 á meðan
minni vélin, Airbus A330-800, mun fá vottun fyrir lok ársins 2018.
Airbus kynnti Airbus A330neo á Farnborough-flugsýningunni í Bretlandi sumarið 2014 en síðan
þá hefur Airbus fengið yfir 300 pantanir í þessa þotu sem mun verða arftaki Airbus A330.
Meðal þeirra flugfélaga og fyrirtækja sem hafa pantað Airbus A330neo eru t.a.m. Delta Air Lines,
CIT Group, Air Asia X, Hawaiian Airlines, Avolon, Transasia Airways, Air Lease Corporation, Garuda Indonesia og TAP Portugal sem verður fyrsta flugfélagið til þess að fá Airbus A330neo afhenta.
Fyrsta Airbus A330neo mun koma á markaðinn á næsta ári
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.