flugfréttir
Finavia vill losa sig við allt að 10 flugvelli
- Aðeins Helsinki og tveir aðrir flugvellir arðbærir fyrir Finavia
Frá Vantaa-flugvellinum í Helsinki
Finavia ætlar sér að loka einum eða tveimur flugvöllum í Finnlandi á næstunni og þá er stefnt að því að einkavæða fleiri finnska flugvelli með því að selja þá til einkaaðila á næstu árum.
Þetta er liður í aðgerðum Finavia til þess að ná fram hagræðingu og gera rekstur flugvalla í Finnlandi arðbærari en
Finavia einkavæddi á þessu ári Lappeenranta-flugvöllinn í suðurhluta landsins sem er staðsettur er rétt hjá rússnesku landamærunum.
„Mjög sennilega verður einn flugvöllur eða tveir sem munu loka og hætta starfsemi“, sagði Joni Sundelin, varaforstjóri Finavia, við
blaðamenn í kínversku borginni Chengdu þar sem fram fer World Routes ráðstefnan.
Sundelin vildi ekki nefna hvaða flugvellir í Finnlandi það eru sem til stendur að loka en hann tók fram að það muni vonandi skýrast á fyrri helming næsta árs.
Finavia sér í dag um rekstur á 22 flugvöllum í Finnlandi en Sundelin segir að nauðsynlegt sé að fækka þeim niður í 10 eða 12
svo rekstur þeirra allra muni skila arði.
Sundelin segir að eins og staðan er í dag sé það aðeins Vantaa-flugvöllurinn í Helsinki og tveir aðrir flugvellir í Finnlandi sem
skili Finavia gróða.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.