flugfréttir
Farþegar óttast að Monarch sé að verða gjaldþrota á næstu dögum
- Hafa frest fram á föstudag til að endurnýja leyfi fyrir farþegaflugi
Orðrómur fór á kreik sl. sunnudag á samfélagsmiðlum að Monarch Airlines væri að verða gjaldþrota
Breska flugfélagið Monarch Airlines hefur frest fram á föstudag til þess að endurnýja flugferðaskipuleggjendaleyfi sitt (ATOL Certificate) en annars munu bresk flugmálayfirvöld svipta félaginu leyfi til þess að selja fleiri fargjöld og sólarlandaferðir.
Monarch Airlines hefur ítrekað vísað þeim ásökunum á bug að félagið sé að verða gjaldþrota en vitað er til þess að fjárhagsstaða
félagsins sé ekki góð þessa stundina.
Um helmingur breskra flugfélaga munu þurfa að endurnýja sambærilegt leyfi í þessari viku að sögn bresku
flugmálstjórnarinnar en Monarch Airlines hefur ekki sótt um að endurnýja sitt ennþá.
Nokkrar farþegaþotur frá United Airlines voru tiltækar sl. sunnudag til þess að fljúga nokkrar flugferðir fyrir Monarch Airlines
til öryggis ef flugfélagið hefði ekki getað flogið þeim farþegum sem áttu bókað með félaginu.
Til að mynda var Boeing 747 júmbó-þota frá United Airlines fengin til þess að fljúga til Mallorca frá Bretlandi
og þá voru tvær Airbus A330 þotur frá Air Transat sem komu farþegum Monarch til Spánar.
Sagt er að eigendur Monarch Airlines séu í viðræðum við nokkra fjárfesta og aðila um mögulega yfirtöku á félaginu en bresk
flugmálayfirvöld setja hag farþega í fyrsta sæti og vilja tryggja að ef eitthvað kemur upp á að þeir komist leiðar sinnar.
Monarch Airlines er eitt elsta flugfélag Bretlands og það elsta sem hefur ekki breytt um nafn frá stofnun þess árið 1967
Eignarhaldsfélagið Greybull Capital keypti 90% hlut í Monarch Airlines í október árið 2014 en fyrirtækið er sagt vera núna
í viðræðum við kínverska fyrirtækið HNA Group sem á meðal annars og rekur Hainan Airlines, Hong Kong Airlines, Tianjin Airlines auk
tíu annarra flugfélaga.
Einnig er sagt að Greybull Capital sé eigi í viðræðum við fjárfesta í þeirri von að koma meira fé inn í rekstur félagsins og mun hluti
þess fé fara í að fjármagna þær þrjátíu Boeing 737 MAX þotur sem félagið hefur pantað.
Talsmaður Monarch Airlines segir að mjög neikvæðar umræður hafi átt sér stað sl. helgi um fjárhagsstöðu Monarch Airlines
þar sem fjölmargir hafa lýst yfir áhyggjum sínum á samfélagsmiðlum en margir farþegar settu sig í samband
við Monarch Airlines á Twitter-síðu félagsins og höfðu áhyggjur af því að félagið væri að verða gjaldþrota.
Flugfélagið hefur ítrekað lýst því yfir að flug félagsins sé á áætlun og að allt sé með eðlilegum hætti og ekki sé þörf
á því að hafa áhyggjur varðandi áætlunarflug þess.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.