flugfréttir
TF-GAY varð fyrir eldingu í flugtaki í Keflavík
Vélin var á leið til Parísar í morgun þegar eldingu laust niður í hana / Ljósmynd: Halldór Guðmundsson
TF-GAY, Airbus A330 breiðþota WOW air, varð fyrir eldingu í flugtaki frá Keflavíkurflugvelli í morgun laust eftir klukkan 8.
Nokkrir sjónarvottar á jörðu niðri urðu vitni að því er vélin fékk fleiri en eina eldingu í sig skömmu eftir að hún fór í loftið af flugbraut 11 til austurs
yfir Njarðvík áleiðis til Parísar.
Halldór Guðmundsson í Njarðvík tók þess einstöku mynd þar sem hann náði að smella af á sama augnarbliki og TF-GAY varð fyrir eldingunni
í flugtakinu en vélin hélt för sinni áfram til Parísar og snéri ekki við en kl. 10:48 var hún í 40.000 fetum að nálgast Blackpool.
Gríðarlegt þrumuverður gekk yfir Reykjanesbæ með kröftugum eldingum og varð jörð hvít sökum hagléls sem fylgdi í kjölfarið.
Halldór tók myndina frá Allt Hreint á Holtsgötunni í Njarðvík
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.