flugfréttir

Flugmenn leystir frá störfum eftir óeðlilegt klifur í flugtaki á Heathrow

- Íbúar sögðu vélina hafa rétt náð yfir grindverkið við flugbrautina

18. október 2016

|

Frétt skrifuð kl. 15:05

Boeing 777-300 þota í flugtaki frá London Heathrow

Rannsóknarnefnd flugslysa í Bretlandi rannsakar nú atvik sem átti sér stað í ágúst er farþegaþota af gerðinni Boeing 777-300 frá indverska flugfélaginu Jet Airways var óeðlilega lengi að ná flughæð eftir flugtak frá Heathrow-flugvellinum í Bretlandi á leið sinni til Bombay.

Atvikið átti sér stað þann 30. ágúst sl. en samkvæmt mælingum kom í ljós að vélin var óvenju lengi að hefja sig á loft eftir flugtak frá 27L og fór mjög lágt yfir grindverk flugvallarins og var aðeins í 350 feta hæð yfir götunni Spout Lane sem er í 740 metra fjarlægð vestur af 09R brautinni á Heathrow og var ekki komin upp í 1.000 fet fyrr en 3,2 kílómetrum vestur af flugbrautarendanum.

Báðir flugmennirnir sem flugu vélinni hafa verið leystir af störfum tímabundið á þeim forsendum að þeir flugu vélinni í óöruggri flughæð eftir flugtak í kjölfar þess að vélin nýtti sér ekki fulla lengd flugbrautarinnar í flugtakinu.

Atvikið kom í ljós eftir að kvartanir bárust frá íbúum sem búa vestur af 09R brautinni í Stanwell Moor hverfinu sem hringdu í lögreglu en eftir að yfirmenn í flugturninum á Heathrow fréttu af atvikinu var það sent áfram til indverskra flugmálayfirvalda.

Indversk flugmálayfirvöld segja að óörygg flughæð eftir flugtak getur haft í för með sér mjög alvarlegar afleiðingar og er bent á flugslys sem átti sér stað árið 1993 er farþegaþota af gerðinni Boeing 737 frá Indian Airlines brotlenti eftir að hún rakst með hjólastell utan í ökutæki á flugvelli í flugtaki með þeim afleiðingum að 84 létu lífið.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga