flugfréttir
Viltu læra að fljúga Douglas DC-3?
Enn er ekki of seint til að næla sér í tegundaráritun á Douglas DC-3
Ef einhver flugmaður hefur áhuga á að læra á 80 ára gamla flugvél á borð við Douglas DC-3 þá er sá draumur ekki alveg úti því enn eru einhverjir flugskólar sem kenna á þessa flugvélategund.
Að minnsta kosti tvö fyrirtæki í Bandaríkjunum bjóða til að mynda upp á þjálfun á Douglas DC-3 þrátt fyrir að meira en sex
áratugir eru síðan að framleiðslu vélanna var hætt.
Fyrirtækið Aerometal International í Aurora í Oregon sérhæfir sig í viðhaldi og endurnýjun á gömlum flugvélum og kennir
m.a. á DC-3 en þar fá flugmenn þjálfun á vélina og er stuðst við kennsluefni frá árinu 1943 sem bandaríski flugherinn notaði.
Tegundaráritun á DC-3 kostar um 2,5 milljónir króna
Þá hefur Elite Flight Services í Griffin í Georgíu kennt flugmönnum á DC-3 frá árinu 2001 og er bæði boðið upp á aðstoðarflugmannsréttindi
á vélina og fulla tegundaráritun.
Kennt er á DC-3 flugvél sem upphaflega flaug fyrst hjá Swissair árið 1938 en í þjálfuninni er innifalin kennsla á fjölhreyfla
flugvél.
Talið er að um 400 Douglas DC-3 og C-47 Skytrain (Dakota) vélar séu enn í flughæfu ástandi í heiminum í dag en vélunum fer
þó fækkandi þar sem erfiðlega gengur að halda þeim við vegna skorts á varahlutum.
Elite Flight Services hefur á 15 árum gefið út yfir 100 ný réttindi á DC-3, bæði PIC og SIC en ekki eru margir flugmenn í dag
sem hafa réttindi til að fljúga þeim úr vinstra sætinu.
Með áframhaldandi þjálfun á DC-3 getur Elite Flight Services og Aerometal International lengt þann tíma sem DC-3 vélarnar
eiga eftir á flugi.
Douglas DC-3 flaug fyrst árið 1935
Elite Flight Services hefur sjö tegundur af kennsluflugvélum í flota sínum, allt frá Diamond DA-40 og Beech Baron til Cessnu og Douglas DC-3 sem er dýrasta vélin til að læra á en fullt verð á tegundaráritun á „þristinn“ kostar 2,5 milljón króna og tekur þjálfunin 5 daga.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.