flugfréttir
Fóru í flugtak án leyfis og í veg fyrir aðra þotu í aðflugi
- Belgísk flugmálayfirvöld líta málið mjög alvarlegum augum
Embraer E-195 þota Air Dolomiti
Flugmálayfirvöld í Belgíu hafa hafið rannsókn á alvarlegu atviki sem átti sér stað fyrr í þessum mánuði er farþegaþota hóf sig á loft án þess að hafa fengið leyfi til flugtaks.
Atvikið átti sér stað þann 5. október er farþegaþota af gerðinni Embraer E-195 frá ítalska flugfélaginu Air Dolomiti
fór í flugtak frá flugvellinum í Brussel áleiðis til Munchen en flugið var á vegum Lufthansa.
Flugmenn vélarinnar höfðu fengið heimild til að stilla sér upp fyrir flugtak við brautarendann á 07R en á sama tíma var þota af gerðinni
Airbus A320 frá Aer Lingus að koma inn til lendingar á braut 01 sem þverar 07R/25L brautina.
Þegar Aer Lingus vélin var í 250 feta hæð (yfir yfirborði jarðar) báðu flugumferðarstjórar flugmennina um að fara í fráflug („go around“)
hið snarasta þar sem Air Dolomiti vélin var í flugtaksbruni á brautinni en samkvæmt upptökum af LiveATC.com þá mátti heyra að flugumferðarstjórunum var heitt í hamsi.
Flugmennirnir á Embraer-vélinni fengu að heyra að þeir hefðu ekki haft leyfi til að fara í flugtak („You were not cleared for take-off“) og var þeim
gert að fylla út skýrslu vegna málsins eftir flugið en flugmennirnir báðust afsökunar á „misskilningnum“. Aer Lingus vélin gerði aðra aðflugstilraun og lenti 11 mínútum síðar.
Belgísk flugmálayfirvöld tilkynntu um atvikið í gær og er það litið mjög alvarlegum augum og stendur rannsókn yfir.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.