flugfréttir
Ryanair til í að fá allar þær Boeing 737-800 sem eru á lausu
- Vilja einnig fá þær 737-800 vélar sem detta úr pöntun hjá Boeing
Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair
Enn og aftur þarf Ryanair á fleiri flugvélum á að halda en félagið leitar nú að fleiri Boeing 737-800 þotum, bæði nýjum og notuðum.
Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, segir að það sé þó hægara sagt en gert þar sem engar 737-800 virðast
liggja á lausu eða vera að koma á markaðinn á næstunni á leigumarkaði og þá gengur erfiðlega að fá nýjar
Boeing 737 þotur afhentar fyrr frá framleiðanda en afhendingaráætlun segir til um.
O´Leary segist vera opin fyrir tilboði ef eitthvert flugfélag eða flugrekstraraðili „lumar“ á Boeing 737-800 með því
skilyrði að verðið sé sanngjarnt.
O´Leary segir að ef einhverjar nýjar þotur verða fáanlega árið 2017 og 2018 að þá myndi Ryanair vilja fá þær með glöðu
geði og einnig ef einhver hættir við pöntun.
Í dag á Ryanair eftir að taka við 110 eintökum af nýjum Boeing 737-800 þotum auk þess sem félagið pantaði
einnig 100 eintök af Boeing 737 MAX 200 sem félagið pantaði í september árið 2014.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.