flugfréttir

Þrettán flugumferðarstjórum í Kína refsað eftir alvarlegt atvik

- Airbus A330 breiðþota ók í veg fyrir A320 í flugtaki í Shanghai

23. október 2016

|

Frétt skrifuð kl. 16:09

Airbus A321 þota China Eastern á Hongqiao-flugvellinum í Shanghai

Þrettán flugumferðarstjórum í Kína hefur verið refsað í kjölfar alvarlegs atviks sem átti sér stað er farþegaþota ók yfir flugbraut í veg fyrir aðra þotu sem var í flugtaksbruni.

Atvikið átti sér stað á Hongqiao-flugvellinum í Shanghai þann 11. október sl. þegar Airbus A320 þota frá China Eastern Airlines var í flugtaki en vélin var komin á 200 hnúta hraða þegar flugmennirnir komu auga á Airbus A330 frá sama flugfélagi sem var að aka yfir brautina.

Flugmennirnir náðu að fara í loftið og héldu fluginu áfram til kínversku borgarinnar Tianjin og lenti vélin án athugasemda.

Flugmálayfirvöld í Kína hafa refsað 13 flugumferðarstjórum í kjölfar þessa atviks en nokkrir þeirra hlutu áminningu, aðrir fengu sektir, nokkir voru leystir frá störfum og þá voru einhverjir sem voru sviptir réttindum sínum til að stjórna flugumferð.

Töluvert hefur dregið úr flugslysum og flugatvikum í Kína að undanförnu en umrætt atvik þykir endurspegla nauðsyn þess að grípa í taumana gagnvart ört vaxandi flugumferð í Kína sem á eftir að halda áfram að aukast enn frekar með hverju árinu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga