flugfréttir
Dubai dregur úr aðskilnaði minni og stærri flugvéla í aðflugi
- Mun draga úr seinkunum um 40 prósent á háannatíma
Frá flugvellinum í Dubai
Flugvöllurinn í Dubai hefur nú séð við seinkunum á komuflugi með nýjum flugumferðarstjórnunarbúnaði sem búið er að taka í notkun sem mun gera flugvellinum kleift að taka við fleiri lendingum á hverja klukkustund en hann hefur gert hingað til.
Frá því í mars í vor hafa farið fram tilraunir með nýrri flugumferðaraðferð er nefnist „approach peak offload“ (APO) sem reiknar út með meiri nákvæmni
lágmarksfjarlægð sem þarf til að skilja að minni flugvélar á borð við Boeing 737 og stærri breiðþotur og risaþotur á borð við Airbus A380.
Minni flugvélar sem lenda á eftir stærri þotum þurfa að vera í lengri fjarlægð þar sem stórar flugvélar skilja eftir sig mikla flugröst sem er ólga í
loftstreymi sem kemur m.a. frá vængendahvirflum.
Airbus A330 og Airbus A380 risaþota Emirates
Flugvallaryfirvöld í Dubai gera ráð fyrir að hægt verði að draga úr seinkunum á komuflugi um 40 prósent með því að minnka aðskilnað smærri
véla og stærri flugvéla sem eru að koma inn til lendingar og má því hraða fyrir því ferli er kemur að lendingum og akstri frá flugbraut að flugstöð.
Einnig gera flugmálayfirvöld í Dubai ráð fyrir að hægt verða að draga úr losun kolefna um allt að 447 tonn á hverjum mánuði með aðferðinni
þar sem flugvélar munu með þessu eyða minni tíma í því að bíða eftir lendingarleyfi.
Seinkanir á komuflugi hafa valdið því fjöldi flugvéla þurfa að vera í biðflugi og hringsóla í nágrenni flugvallarins í Dubai eins og tíðkast oft við stóra
flugvelli víðast hvar í heiminum en með þessu geta flugfélög verið oftar á réttum tíma sem mun bæta flugáætlun þeirra.
Margar minni flugvélar hafa þurft að hafa langa vegalengd framundan ef Airbus A380 risaþota hefur verið á undan þeim að lenda en Emirates
hefur í dag 84 risaþotur í flotanum sem fljúga til og frá Dubai en þeim mun fjölga upp í 117 risaþotur fyrir lok ársins 2018.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.