flugfréttir
Alaska Airlines frestar afhendingum á Boeing 737 MAX
Tölvugerð mynd af Boeing 737 MAX í litum Alaska Airlines
Alaska Airlines hefur ákveðið að fresta því að fá fyrstu Boeing 737 MAX vélarnar afhentar til ársins 2018 en félagið átti að fá fyrstu vélarnar afhentar á síðari hluta næsta árs.
Brandon Pedersen, fjármálastjóri Alaska Airlines, segir að of mikið sé á könnu stjórnarinnar hjá félaginu á næstunni og var því ákveðið
að bíða með að taka Boeing 737 MAX vélarnar inn í flotann.
Alaska Airlines er þessa stundina að vinna að samruna félagsins við Virgin America sem félagið tók yfir eftir kaupin í apríl í vor
og er beðið eftir leyfi fyrir þeim viðskiptum frá bandarískum yfirvöldum.
Alaska pantaði 37 Boeing 737 MAX þotur á sínum tíma en tuttugu eru af gerðinni Boeing 737 MAX 8 og sautján af gerðinni 737 MAX 9 en til stóð
að fyrsta vélin, Boeing 737 MAX 8, yrði afhent í desember árið 2017.
Þrátt fyrir það þá mun Alaska Airlines fá margar vélar í flotann á næsta ári en félagið á von á þrettán Boeing 737-900ER vélum árið 2017 en á sama tíma
mun félagið losa sig við sextán vélar og þar á meðal munu allar Boeing 737-400 vélarnar fara úr flotanum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.