flugfréttir
EasyJet stefnir á að fljúga um Heathrow-flugvöll
Airbus A319 þota easyJet á Gatwick-flugvelli
EasyJet hefur ákveðið að skoða möguleika á að fljúga um Heathrow-flugvöll en lágfargjaldafélagið breska tilkynnti þetta í dag í kjölfar þess að ríkisstjórn Bretlands hefur nú gefið leyfi fyrir þriðju flugbrautinni.
Carolyn McCall, framkvæmdarstjóri easyJet, segir að ef félagið muni fá sanngjörn lendingargjöld sem munu henta viðskiptamódeli félagsins þá ætlar
félagið að fljúga um Heathrow-flugvöll en easyJet flýgur í dag um þrjá af þeim fimm flugvöllum sem eru staðsettir í nágrenni Lundúna sem eru Stansted, Luton
og Gatwick.
EasyJet hefur áður lýst áhuga félagsins á að fljúga um Heathrow-flugvöll og lýsti félagið því yfir í júní árið 2014 en þá kom fram að það færi allt
eftir því hvort að leyfi yrði veitt fyrir stækkun Heathrow-flugvallar.
Sífellt fleiri viðskipta- og kaupsýslumenn notfæra sér easyJet til að fljúga á milli vinnustaða eða til að sækja fundi og væri því um mikilvægan sigur að ræða fyrir easyJet að geta boðið þeim upp á að fljúga um Heathrow.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.