flugfréttir

Air Kyoto bannað að fljúga til Kuwait

25. október 2016

|

Frétt skrifuð kl. 20:19

Tupolev Tu-204 þota Air Kyoto

Norðurkóreska flugfélagið Air Kyoto hefur verið bannað fljúga til Kuwait en starfsmenn á skrifstofu félagsins í Kúvætborg voru á dögunum látnir vita að félagið fær ekki lengur að fljúga til borgarinnar frá Pyongyang.

Air Kyoto, sem er eina flugfélagið í Norður-Kóreu, hefur flogið til Kuwait frá árinu 2011 með Tupolev Tu-204 þotum en Emad Faleh Al Juluwi, forsvarsmaður Kuwait-flugvallarins, segir að ástæða bannsins sé tilkomin vegna beiðni frá Sameinuðu Þjóðunum.

Norður-Kórea hefur a.m.k tvisvar á þessu ári gert tilraunir með kjarnorkusprengju en sú seinasta var gerð í september sem brýtur í bága við sáttmála Sameinuðu Þjóðanna sem hefur farið fram á að Kuwait framfylgi viðskiptaþvingunum á Norður-Kóreumenn með því að banna þeim að fljúga til landsins.

Þá er farið fram á að aðildarlönd innan Sameinuðu Þjóðanna framkvæmi leit í öllum þeim flugvélum sem fljúga til þeirra landa frá Norður-Kóreu auk þess sem löndunum er gert að meina norðurkóreskum flugvélum um eldsneyti.

Þar af leiðandi hefur Air Kyoto ekki fengið leyfi til að fá afgreiðslu á eldsneyti í Kuwait og hafa vélar félagsins þurft að millilenda í Islamabad í Pakistan til að fylla á vélarnar áður en þær halda áfram til Pyongyang.

Air Kyoto hefur þó ekki flogið mjög reglulega til Kuwait en frá maí árið 2015 til maí á þessu ári hafði félagið aðeins flogið 10 ferðir milli Pyongyang og Kúvætborgar en seinasta ferðin var farin í ágúst.

Norðurkóreskir fjölmiðlar segja að flugvélin sem flaug seinast til Kuwait hafi ekki fengið leyfi til að lenda í borginni og þurfti að snúa við aftur til Norður-Kóreu með viðkomu í kínversku borginni Urumqi en samkvæmt yfirvöldum í Kuwait og Flightradar24.com þá lenti vélin þar samt sem áður.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga