flugfréttir
Airbus A340 fagnar 25 ára afmæli
- Flaug jómfrúarflugið 25. október árið 1991
Airbus A340 í jómfrúarfluginu þann 25. október árið 1991
Airbus A340 breiðþotan fagnaði í gær 25 ára flugafmæli en þá var aldarfjórðungur frá því þessi fjögurra hreyfla breiðþota flaug jómfrúarflugið sitt, þann 25. október árið 1991.
Alls voru sex Airbus A340 tilraunavélar smíðaðar sem tóku þátt í flugprófunum en ýmis vandamál áttu eftir að koma upp í hönnunarferlinu en m.a.
kom í ljós að vængirnir á A340 voru ekki nægilega sterkir til að bera fjóra hreyfla.
En fyrsti vísir að Airbus A340 þotunni má rekja til áttunda áratugarsins en þá hafði Airbus komið með sína fyrstu farþegaþotu á markaðinn, Airbus A300,
en nokkrar útgáfur voru smíðaðar af þeirri vél
sem nefndust Airbus A300B1, B2 og B4 en vélarnar veittu framleiðendum á borð við Boeing, Douglas og Lockheed samkeppni.
Teikningar af Airbus A340 og A330
Á sama tíma og Airbus vann hörðum höndum að þróun á minni þotu, sem var Airbus A320, þá voru flugfélög farin að óska eftir nýjum þotum
í stað Boeing 707 og Douglas DC-8 sem voru komnar til ára sinna.
Airbus vann að Airbus A300B9 sem átti að vera ný vél sem var ætlað að leysa af hólmi Douglas DC-10 og Lockheed TriStar breiðþoturnar og átti A300B9
að vera lengri útgáfa af Airbus A310 en á einum tímapunkti átti Airbus í viðræðum við McDonnell Douglas um samstarf um þróun og hönnun á nýrri þotu til að veita
Boeing og Lockheed samkeppni.
Airbus og McDonnell Douglas í samstarf um nýja þotu
Fyrirhuguð samstarfsverkefni Airbus og Locheed bar vinnsluheitið AM300 og voru komnar á teikniborðið tvær systurvélar sem nefndust TA9 og TA11
en „TA“ stóð fyrir flugvél með tveimur göngum („twin aisle“).
Airbus hafði þegar kynnt TA9 og TA11 flugvélarnar fyrir flugfélögunum á flugsýningunni í París árið 1985 og áttu vélarnar að koma með sama stjórnklefa
og Airbus A320, „fly-by-wire“ kerfi og stýripinna í stað stýris
Til að halda hönnunar- og framleiðslukostnaði í lágmarki var ákveðið að vélarnar myndu deila sama skrokki og sömu hönnun á væng en ekkert varð úr þessari flugvél vegna ósamkomulags þar sem McDonnell Douglas vildi fara í smíði á þriggja hreyfla þotu sem var eitthvað sem Airbus tók ekki í mál.
Airbus A340-300 tilraunavél árið 1996
Eftir að McDonnall Douglas hætti við samstarfið hélt stjórn Airbus fund þann 27. janúar árið 1986 þar sem forstjóri framleiðandans tilkynnti að núna
væri Airbus í stöðu til þess að klára þessi verkefni á eigin spýtur með sína eigin þekkingu í flugvélaiðnaðinum og var því ákveðið
að TA9 myndi koma til með að taka næsta tug í „A300“ röðinni.
Þá var voru liðin 14 ár frá því að Airbus A300 flaug sitt fyrsta flug, fjögur ár frá fyrsta flugi A310 og verið var að smíða fyrstu Airbus A320 þotuna sem átti svo
sannarlega eftir að verða vinsæl flugvél.
„TA11“ fékk nafnið Airbus A340
Næsti tugur fyrir ofan var Airbus A330 sem var það nafn sem TA9 hugmyndavélin fékk og TA11 fékk nafnið Airbus A340 og var ákveðið að hún skildi
verða fjögurra hreyfla þota á meðan A330 yrði tveggja hreyfla vél.
Bæði Airbus A330 og A340 voru formlega kynntar fyrir flugfélögunum á flugsýningunni Paris Air Show árið 1987 en fyrst um sinn komu inn pantanir frá tíu
flugfélögum í 130 þotur en 89 af þeim voru pantanir í fjögurra hreyfla útgáfuna, Airbus A340.
Á sama tíma og A340 var í þróun vann McDonnell Douglas að MD-11
Flugfélögin áttu eftir að sýna Airbus A340 mikinn áhuga en á sama tíma var McDonnell Douglas á fullu að hanna og smíða fyrstu MD-11 þotuna en flugfélögin gerðu
miklar kröfur til stærri þotna og vildu mörg breiðþotu með fjórum hreyflum sem gæti flogið heimshorna á milli.
Meiri áhugi fyrir Airbus A340 heldur en MD-11
Singapore Airlines vildi fá vildi fá stóra þotu sem gæti flogið auðveldlega frá Singapore til Parísar á móti sterkum háloftavindum en þá hafði félagið pantað
McDonnell Douglas MD-11 breiðþotuna en frammistaða þeirra vélar reyndist ekki uppfylla kröfur Singapore Airlines.
Félagið hætti við pöntun í tuttugu MD-11 þotur og pantaði þess í stað 20 Airbus A340-300 breiðþotur. Á þeim tíma var ljóst að McDonnell Douglas
hafði tapað samkeppninni við Airbus með MD-11 þotunni þar sem mörgum flugfélögum leyst betur á Airbus A340.
Fyrsta Airbus A340 þotan var afhent þann 2. febrúar árið 1993 til Lufthansa sem var af gerðinni Airbus A340-200 og síðar í sama mánuði fékk Air France sína fyrstu A340 vél en vélarnar áttu eftir að verða vinsælar hjá báðum félögunum og það sama má segja um Swissair sem pantaði einnig A340 þotuna og þá varð Sri Lankan Airlines fyrsta flugfélagið í Asíu til að taka við Airbus A340.
Airbus A340-600 var á tíma lengsta farþegaþota í heimi
Fjórar mismunandi útgáfur af Airbus A340
Fjórar útgáfur af Airbus A340 voru hannaðar og fóru í framleiðslu á þeim 23 árum sem vélarnar voru framleiddar. Airbus A340-200, -300, -500 og loks Airbus A340-600 sem átti um tíma heimsmetið sem lengsta farþegaþota
heims allt til ársins 2010 en þá kom Boeing 747-8 á markaðinn sem er að vísu aðeins 1 meter lengri en A340-600.
Emirates var fyrsta flugfélagið til að fá Airbus A340-500 vélina afhenta og var félagið einnig fyrsta flugfélagið til að fljúga þeirri tegund til Bandaríkjanna
á flugleiðinni milli Dubai og New York og Singapore Airlines notaði vélina m.a. í flugi milli Singapore og Newark-flugvallarins sem var á tíma lengsta
áætlunarflug sögunnar.
Virgin Atlantic var hinsvegar fyrsta flugfélagið til að taka við Airbus A340-600 þotunni en Richard Branson kunni svo sannalega að „monta“ sig af lengd vélanna með því að setja á þær vélar merkingu sem á stóð „Mine is Longer Than Yours“ árið 2002.
Airbus A340-600 þota Virgin Atlantic
Hápunktur framleiðslunnar á Airbus A340 þotunni var árið 1997 og árið 2003 en bæði árin afhenti Airbus 33 eintök af þotunni en árið 2007 fór framleiðslan að
dala en smíði á Airbus A340 lauk árið 2012.
Boeing 777-300ER fangaði athygli flugfélaganna
Það árið voru síðustu tvær A340 þoturnar afhentar sem voru af gerðinni Airbus A340-500 sem var ein langdrægasta
farþegaþota í heimi með flugþol upp á 16.700 kílómetra.
Segja má að Boeing hafi slegið Airbus A340 þoturnar út af borðinu með sínu útspili sem var Boeing 777-300ER sem var þá, og er enn í dag, stærsta tveggja
hreyfla þota í heimi en með henni kom í ljós að fjögurra hreyfla þotur voru mjög óhentugar fyrst að jafn stór breiðþota var komin á markaðinn með aðeins tvo hreyfla
en hátt verð á þotueldsneyti varð einnig Airbus A340 að falli.
Airbus A340 í lendingu
Þótt að framleiðslu á Airbus A340 var hætt fyrir fimm árum síðan þá lifir tveggja hreyfla systurþotan, Airbus A330, enn góðu lífi og er enn vinsæl
meðal flugfélaga og mun arftaki hennar, Airbus A330neo, koma á markaðinn næsta vor.
Airbus tilkynnti í nóvember árið 2011 að framleiðslu á Airbus A340 yrði hætt en þrátt fyrir það eru enn í dag 277 eintök af Airbus A340 vélunum í umferð en Lufthansa hefur flest eintökin eða alls 42 þotur af gerðinni Airbus A340-300 og A340-600 og þá hefur Iberia 24 eintök og South African
hefur þriðja stærsta A340 flota heims sem telur 17 vélar.
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.