flugfréttir
SAS flýgur fyrsta áætlunarflugið með Airbus A320neo
LN-RGL er fyrsta Airbus A320neo þota SAS
Scandinavian Airlines (SAS) hefur fengið sína fyrstu Airbus A320neo þotu afhenta en vélin var í gær formlega frumsýnd í flugskýli SAS á Arlanda-flugvellinum í Stokkhólmi.
Vélin, sem ber skráninguna LN-RGL, var flogið afhendingarflugið þann 21. október en vélin kemur með LEAP-1A hreyfli frá CFM International sem gerir
vélina allt að 15% sparneytnari en hefðbundnar Airbus A320 þotur.
LN-RGL hefur nú þegar flogið fyrsta áætlunarflugið sem var farið í morgun frá Kaupmannahöfn til Stokkhólms og til baka en vélin hefur fengið
nafnið „Sol Viking“.
Þetta er fyrsta Airbus A320neo þota SAS af þeim þrjátíu sem félagið pantaði en SAS er fyrsta flugfélagið í Skandinavíu til að taka við Airbus A320neo
og þriðja flugfélagið í Evrópu á eftir Lufthansa og Pegasus Airlines.
Airbus hefur í dag afhent 25 Airbus A320neo þotur en indverska flugfélagið IndiGo er komið með flestar vélarnar eða alls 10 eintök en meðal annarra
viðskiptavina sem hafa fengið A320neo eru AerCap, AirAsia, GoAir og LATAM.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.