flugfréttir
Boeing bjartsýnni á að „arftaki“ 757 verði að veruleika
Flugfélögin vilja fá þotu sem er í sambærilegum stærðarflokki og Boeing 757
Boeing eru sagðir vera enn bjartsýnni á að ráðist verði í framleiðslu á nýrri tegund af farþegaþotu sem er ætlað að brúa bilið sem Boeing 757 skildi eftir sig en þrátt fyrir það eru einhver ár í að það verði að veruleika.
„Ég myndi segja að við erum bjartsýnni á hlutina núna en við höfum verið hingað til“, segir Randy Tinseth, markaðsstjóri yfir farþegaþotudeild Boeing en hann tekur
fram að önnur verkefni hafa forgang á borð við Boeing 777X, Boeing 737 MAX og Dreamliner-vélina.
„Þannig að hvað sem verður þá mun ekkert gerast fyrr en við erum búnir að komast í gegnum það mesta með þær flugvélar“, segir Tinseth en Boeing er undir mikilli pressu
að framleiða farþegaþotu sem myndi fylla í „gatið“ en mörg flugfélög vilja fá meðalstóra þotu sem yrði stærri en Boeing 737 MAX 9 en samt minni
en Boeing 787-8.
Boeing 757 á Farnborough-flugsýningunni árið 1982
Ray Conner, framkvæmdarstjóri yfir farþegaþotudeild Boeing, segir að framleiðandinn sé enn að meta þörfina
fyrir þessa flugvél en viðræður standa enn fyri við flugfélög.
Þá hefur Boeing einnig verið að skoða möguleika á enn lengri Boeing 737 MAX sem myndi koma til með að heita 737 MAX 10 en hún myndi þó
aldrei koma á markaðinn fyrr en búið er að smíða minnstu þotuna, Boeing 737 MAX 7, sem kemur á markað árið 2019.
Í haust var greint frá því að mögulega myndi Boeing bæði smíða nýja þotu í stað Boeing 757 og framleiða Boeing 737 MAX 10 en engin ákvörðun
hefur verið tekin hvort kemur til greina.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.