flugfréttir
Finnair skortir flugmenn þar sem margir eru í þjálfun á A350
- Taka á leigu breiðþotu frá Hi Fly tímabundið
Airbus A350 þota Finnair
Finnair hefur neyðst til þess að taka á leigu breiðþotu af gerðinni Airbus A340 frá portúgalska flugfélaginu HiFly vegna skorts á flugmönnum þar sem verið er að þjálfa stóran hóp þeirra á nýju Airbus A350 vélarnar.
Airbus A350 floti Finnair stækkar ört en flugfélagið finnska hefur í dag tekið við sjö vélum og hefur félagið því þurft að þjálfa það marga flugmenn
á A350 að það var farið að bitna á flugáætlun félagsins.
Airbus A340 þotan er tekin á leigu með áhöfnum tímabundið og verður vélin notuð í flugi frá Helsinki til New York frá 3. nóvember til
8. janúar árið 2017.
Finnair pantaði á sínum tíma nítján Airbus A350 þotur en félagið verður komið með 11 þotur á sama tíma að ári og þá mun félagið fá átta til viðbótar
á næstu sjö árum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.