flugfréttir

BA sakað um að gera lítið úr heilsuspillandi eiturgufum í flugvélum

- 20 flugliðar, þrír flugmenn og tveir farþegar enduðu á sjúkrahúsi

5. nóvember 2016

|

Frétt skrifuð kl. 17:04

Starfsmannafélagið Unite segir British Airways gera lítið úr heilsuspillandi eiturgufum

Stéttarfélag yfir 20 þúsund flugliða sem starfa hjá British Airways sakar flugfélagið breska um að gera lítið úr þeim heilsuspillandi áhrifum sem eitraðar gufur geta haft á starfsumhverfi þeirra í kjölfar atviks er 25 manns um borð í Airbus A380 risaþotu voru fluttir á spítala í síðustu viku eftir að hafa veikst í háloftunum.

Risaþota British Airways var á leið sinni frá San Francisco til London Heathrow þann 24. október sl. en þegar vélin var í 37.000 fetum skammt austur af Vancouver þegar flugmenn vélarinnar lýstu yfir neyðarástandi um borð eftir að fjöldi farþega og flugliða veiktust skyndilega eftir að eitraðar gufur fóru að myndast um borð.

Vélin snéri við og lenti í Vancouver þar sem 25 manns voru fluttir á sjúkrahús vegna gruns um reykeitrun, 20 flugliðar, þrír flugmenn og tveir farþegar.

Stéttarfélagið Unite hefur farið fram á að rannsókn verði gerð á atvikinu auk þess sem rannsökuð verða þau áhrif sem loftgæði í flugvélum geta haft á heilsu áhafna en félagið gagnrýnir skoðun British Airways á málinu sem segir að einungis hafi um torkennilega lykt verið að ræða.

Airbus A380 risaþota British Airways á flugvellinum í Vancouver þann 25. október síðastliðinn

Annað sambærilegt atvik, en þó minna í umfangi, kom upp daginn eftir um borð í öðru flugi British Airways á leið frá London Heathrow til Los Angeles en það flug hélt þá för sinni áfram. Samkvæmt upplýsingum frá stéttarfélaginu þá þurfu flugmennirnir samt sem áður að setja á sig súrefnisgrímur eftir að þeir urðu varir við gufur af einhverju tagi.

Stéttarfélagið Unite segir að hvorki British Airways né bresk flugmálayfirvöld vilji viðurkenna málstað þeirra sem telja að eitraðar gufur um borð í flugvélum geti haft slæm áhrif á heilsufar áhafna.

„Það er alveg augljóst m.a.v. þær upplýsinga sem við höfum í höndunum, auk samtals milli flugmanna og flugumferðarstjóra varðandi atvikið þar sem risaþota British Airways þurfti að lenda í Vancouver, að þar var mun alvarlegra atvik á ferðum að aðeins „smávægileg lykt“, segir Howard Beckett, lögfræðingur hjá stéttarfélaginu.

„Að gera lítið úr hættulegum eiturefnagufum um borð í flugvélum með því að kalla það „atvik með lykt“ er aðeins útúrsnúningur og tilraun til að bæla niður alvarleika málsins og staðreynir“, segir Beckett sem tekur fram að slíkar gufur geti til lengri tíma haft mjög slæm áhrif á áhafnir.

Andrúmsloft í farþegarými getur orðið heilsuspillandi þegar efni á borð við olíu eða vökvakerfisolíu komast í snertingu við það loft sem loftflæðikerfið (bleed air) dælir inn í farþegarýmið frá hreyflunum í hringrás en loftið fer í gegnum loftræstisíur sem er ætlað að sía í burtu bakteríur og önnur óhreinindi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga