flugfréttir

Óprúttinn aðili fór inn á ATC-tíðni og gabbaði Boeing 737 í go-around

- Hefur 15 sinnum komist inn á tíðnina á Melbourne og valdið usla

10. nóvember 2016

|

Frétt skrifuð kl. 07:46

Boeing 737-800 þota Virgin Australia á Tullamarine-flugvellinum í Melbourne

Farþegaþota í Ástralíu hætti við lendingu í aðflugi að flugvellinum í Melbourne í kjölfar gabbs en í ljós kom að einhver óprúttinn aðili hafði gefið flugmönnum fölsk fyrirmæli í gegnum sömu tíðni og flugumferðarstjórnin notar og beðið vélina um að hætta við lendingu.

Um var að ræða farþegaþotu frá Virgin Australia af gerðinni Boeing 737-800 sem var að lenda á Tullamarine-flugvellinum (MEL) þann 27. október sl. eftir flug frá Gold Coast en eftir hin dularfullu fyrirmælin tóku flugmenn vélarinnar ákvörðun um að hætta við lendingu og fóru í fráflug („go around“).

Á Flightradar24.com mátti sjá hvar vélin hætti við lendingu í aðeins 200 fetum og byrjaði að klifra aftur og fór í 3.800 fet þar sem hún hringsólaði um stund í nágrenni Melbourne.

Talið er að einhverjum aðila hafi tekist að brjóta sér leið inn á sömu tíðni og flugumferðarstjórar og flugmenn nota á flugvellinum og tekið þátt samskiptum sem aðeins eiga að eiga sér stað á milli flugturns og flugmanna.

Frá flugvellinum í Melbourne í Ástralíu

Síðar um kvöldið gabbaði sami aðilinn flugturninn þar sem hann þóttist vera flugmaður á fisflugvél í vanda og tilkynnti um vélarbilun.

Eftir að flugumferðarstjórar gerðu sér grein fyrir gabbinu létu þeir aðra flugmenn í nágrenninu vita og báðu þá um að hunsa þessi skilaboð þar sem um óprúttan aðila væri að ræða sem væri að misnota tíðnina.

Lögregla hefur hafið rannsókn á atvikinu en í ljós hefur komið að þessi sami aðili hefur á sl. tveimur vikum leikið þennan leik í a.m.k. 15 skipti með því að fara inn á flugumferðartíðnina.

Flugmenn hjá Virgin Australia hafa verulegar áhyggjur af þessu og hafa sent erindi varðandi málið til ástralskra yfirvalda og segja að öryggi í flugi sé forgangsatriði og geti skapast mikil hætta ef utanaðkomandi aðili er að villa fyrir flugmönnum og flugumferðarstjórum á tíðninni með gabbi.

Lögreglan í Melbourne hefur reynt að leita til almennings í von um að hægt sé að hafa hendur í hári aðilans og handataka hann en þeim flugfélögum og flugmönnu sem fljúga um Melbourne hefur verið gert viðvart.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga