flugfréttir
Airbus mun tilkynna stóra pöntun frá Japan á morgun
Frá samsetningarsal Airbus í Toulouse
Von er á því að Airbus muni tilkynna um mjög stóra pöntun á morgun frá japönsku flugfélagi en það var Fabrice Brégier, framkvæmdarstjóri Airbus, sem tilkynnti um þetta á blaðamannafundi í gær.
Ekki er vitað meira um fyrirhugaða pöntun en talsmaður ANA (All Nippon Airways) segir að flugfélagið hafi ekki nein áform um pöntun til Airbus eins og er
og þá segir Japan Airlines að ekki sé nein pöntun á döfunni hjá þeim á næstunni.
ANA er stærsta flugfélag Japans á meðan Japan Airlines er það næststærsta en önnur flugfélög sem koma til greina eru Peach, Jetstar Japan, Vanilla Air og AirAsia Japan.
Airbus sagði í janúar að til stæði að selja þrjár Airbus A380 risaþotur til ANA en flugvélaframleiðandinn evrópski hefur ekki náð eins mikilli festu í Japan líkt og Boeing
sem er þar á heimavelli vegna áratuga langs samstarfs milli landanna tveggja.
Stór pöntun frá Japan myndi þýða bæði vissan sigur fyrir Airbus í sölu á farþegaþotum til landsins auk þess sem framleiðandinn myndi færast nær takmarki
sínu sem er að fá pantanir í 670 þotur á árinu 2016 en í október hafði Airbus fengið pantanir í 585 þotur á þessu ári.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.