flugfréttir

Icelandair undirritar þjónustusamning við Rolls-Royce

- Munu sjá um reglubundna yfirhalningu á 56 Rolls-Royce RB211 hreyflum

17. nóvember 2016

|

Frétt skrifuð kl. 08:24

Boeing 757-200 þota Icelandair í skýli Icelandair Technical Service / Ljósmynd: Atli Rúnar Hólmbergsson

Icelandair hefur gert samning við Rolls-Royce um kaup á þjónustunni SelectCare sem felur í sér reglubundið viðhald og yfirhalningu á þeim RB211 hreyflum sem knýja áfram Boeing 757 flugflota Icelandair sem telja 28 þotur.

Icelandair hefur átt farsælt samstarf við hreyflaframleiðandann Rolls-Royce í marga áratugi en á næsta ári hafa fyrirtækin tvö átt í samstarf í 60.

SelectCare er ný þjónustuleið sem Rolls-Royce ýtti úr vör í fyrra en með henni geta flugfélög sniðið viðhald á hreyflum að sínum þörfum og getur viðgerð farið fram á mismunandi stöðum þar sem Rolls-Royce hefur viðgerðarverkstæði.

Rolls-Royce kynnti SelectCare þjónustuna í febrúar á þessu ári

Jens Þórðarson, framkvæmdarstjóri ITS, Tækniþjónustu Icelandair, segir í samtali við Alltumflug.is að um sé að ræða þjónustufyrirkomulag sem felur í sér að Rolls-Royce mun sjá um viðamiklar yfirhalningar á RB211 hreyflunum á 6 til 7 þúsund flugferðafresti („flight cycles“) en flugvirkjar félagsins hafa mjög góða reynslu af viðgerðum af RB211 hreyflinum í gegnum árin og hefur Icelandair því séð um viðgerðir og viðhald á þeim að öðru leyti.

Hafa átt í samstarfi við Rolls-Royce frá árinu 1957

Icelandair hefur 56 RB211-hreyfla sem knýja áfram Boeing 757 flotann auk nokkurra varahreyfla en með tilkommu tveggja breiðþotna af gerðinni Boeing 767 þá hefur ný tegund bæst við í verkahring flugvirkja ITS sem er CF6 hreyfillinn frá General Electric en þess má geta að í gær var í fyrsta sinn skipt um CF6 hreyfil á vélunum suður í Keflavík frá því Icelandair tók í notkun Boeing 767 breiðþoturnar í vor.

Samstarf Rolls-Royce og Icelandair nær aftur til ársins 1957 en fyrstu flugvélar Icelandair með hreyflum frá Rolls-Royce voru Vickers Viscount vélarnar en Icelandair hefur verið með RB211 hreyflana frá árinu 1990.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga