flugfréttir
Peach Aviation í Japan pantar þrettán þotur frá Airbus
Tölvugerð mynd af Airbus A320neo í litum Peach
Japanska flugfélagið Peach hefur lagt inn staðfesta pöntun til Airbus í þrettán farþegaþotur en pöntunin samastendur af 10 Airbus A320neo og þremur hefðbundnum Airbus A320 þotum.
Airbus greindi frá því í fyrradag að von væri á stórri pöntun frá Japan í nýjar farþegaþotur en Airbus tilkynnti um pöntunina í morgun.
Shinichi Inoue, rekstrarstjóri Peach Aviation og Fabrice Brégier, framkvæmdarstjóri Airbus, undirrituðu samning um kaup á vélunum þrettán við athöfn sem fram
fór í Tókýó en vélarnar þrettán munu bætast við flota Peach sem samanstendur í dag af 18 Airbus A320 þotum.
Peach er tiltölulega nýtt lágfargjaldafélag sem var stofnað í Japan árið 2012 en fyrsta flug félagsins var flogið í mars það árið frá Osaka til Sapporo en áfangstaðir félagsins
í dag eru sautján talsins, fimmtán í Japan og tveir í Suður-Kóreu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.