flugfréttir
Hvítmáluð og ómerkt Airbus A350 þota vekur athygli
- Átti að afhendast SriLankan Airlines
Ekki er vitað hvað verður um þetta eintak af Airbus A350-900 sem átti að afhendast SriLankan Airlines
Hvít og ómerkt Airbus A350 þota hefur vakið athygli á verksmiðjusvæði Airbus í Toulouse meðal þeirra sem fylgjast grannt með afhendingum Airbus og hafa sumir flugáhugasamir einstaklingar velt því fyrir sér hver muni fá þessa vél.
Nýjar farþegaþotur sem standa hvítar í einhvern tíma boðar ekki alltaf gott þar sem slíkt bendir til þess að óvissa
ríki um eigandann eða að flugvélaframleiðandinn hafi framleitt vél sem ekki er komin í sölu með von um að ná
að finna nýjan viðskiptavin.
Sérstaklega er álitið slæmt þegar um nýja tegund af þotu er að ræða en hvítar flugvélar hafa oft verið
nefndar á ensku „white tailers“ (hvítt stél).
Í þessu tilviki er að ræða Airbus A350 þotu sem pöntuð var af flugvélaleigunni AerCap sem hafði pantað hana
fyrir SriLankan Airlines sem hætti við pantanir í allar fjórar Airbus A350 vélarnar í apríl á þessu ári.
Tvær nýjar Airbus A350 þotur bíða þess að fara í málun í Toulouse
Airbus stefnir á að afhenda 50 eintök af Airbus A350 þotunni á þessu ári og er framleiðandinn sannfærður um að það
muni takast.
Þrátt fyrir það þá eru margir sem velta því fyrir sér hvað verður um þessa vél en óstaðfestar heimildir herma að hún verði seld til flugfélags í Kína en AerCap flugvélaleigan írska mun ekki taka hana eftir afpöntunina frá SriLankan
Airlines.
Ríkisstjórn Sri Lanka þarf að greiða 19 milljarða króna til flugvélaleigunnar AerCap eftir að stjórnvöld í landinu hættu við pöntun í fjórar af þeim átta Airbus A350 þotum sem pantaðar voru.
Aðeins hefur dregið úr pöntunum á stórum farþegaþotum en til lengri tíma litið er talið að eftirspurnin eigi
eftir að aukast og segja sérfræðingar í flugmálum að þessi hvíta Airbus A350 þota eigi ekki eftir að standa þarna lengi.
Vélin sem átti að fara til SriLankan Airlines í tilraunaflugi í október
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.