flugfréttir
Kona opnaði neyðarútgang eftir lendingu og hljóp úr vélinni
- Var stöðvuð af lögreglu er hún hljóp í átt að flugstöðinni
Opinn neyðarútgangur eftir konuna sem lét sig hverfa úr vélinni eftir lendingu
Farþegi um borð í Boeing 737 þotu United Airlines gerði sér lítið fyrir og opnaði neyðarútgang eftir lendingu og stökk út og niður af væng vélarinnar á George Bush flugvellinum í Houston í Texas í gær.
Um var að ræða konu sem flaug með vélinni sem var nýlent eftir flug frá New Orleans en vélin var á flughlaði og beið eftir landgangi
þegar konan opnaði neyarútganginn, gekk út á vænginn og stökk niður á jörðina.
Konan hljóp í átt að flugstöðinni en var stöðvuð af lögreglu sem var fljót á staðinn og var hún handtekin og var færð
til yfirheyrslna af bandarísku alríkislögreglunni FBI.
Vélin lenti 30 mínútum á undan áætlun og voru flugmennirnir að bíða eftir að komast að hliði þegar hún opnaði neyðarútganginn og hreinlega yfirgaf vélina.
Hér að neðan má sjá myndband sem náðist á öryggismyndavélar þar sem sjá má hvar konan hleypur úr vélinni í átt að flugstöðinni.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.