flugfréttir

Báðir svörtu kassarnir fundnir eftir slysið í Kólumbíu

- Flugmennirnir hringsóluðu til að brenna eldsneyti fyrir nauðlendingu

29. nóvember 2016

|

Frétt skrifuð kl. 20:44

Báðir svörtu kassarnir úr flaki vélarinnar eru fundnir

Rannsóknarnefnd flugslysa í Bretlandi (AAIB) hefur hafið rannsókn á flugslysinu í Kólumbíu er Avro RJ-85 farþegaþota frá LAMIA Bolivia fórst í aðflugi að flugvellinum í Medellín í nótt en vélin var framleidd af British Aerospace í Bretlandi.

Breskir rannsóknaraðilar munu koma til Kólumbíu á morgun og munu þeir aðstoða rannsóknarteymi við störf á slysstað auk aðila frá flugvélaframleiðandanum.

Vélin brotnaði í nokkra hluta í fjallshlíð í um 24 kílómetra fjarlægð suður af flugvellinum í Medellín en flugmennirnir höfðu tilkynnt um bilun í rafkerfi vélarinnar skömmu áður en hún hvarf af ratsjá.

Kólumbískur flugslysasérfræðingur með flugritann

Búið er að finna báða svörtu kassa vélarinnar, hljóðritann og flugritann, en kólumbískur flugslysasérfræðingur segir að hann hafi nú báða svörtu kassanna í sinni vörslu.

Flugstjóri vélarinnar hét Miquel Quiroga en talið er að hann ásamt flugmanninum hafi reynt að létta á vélinni fyrir nauðlendingu með því að hringsóla í nágrenni Medellín í þeim tilgangi að brenna eldsneyti.

Aðeins fimm komust lífs af en 81 var um borð í vélinni

Ekki kemur fram hversu marga flugtíma hann hafði að baki en með honum við stjórnvölin var flugmaðurinn Gustavo Encian sem var frá Paraguay en þeir létust báðir í slysinu.

Flugstjóri vélarinnar, Miquel Quiroga (til vinstri) og flugmaðurinn, Gustavo Encian, (til hægri)



Flugstjóri vélarinnar, Miquel Quiroga, ásamt leikmönnum brasilíska liðsins



Áhöfn vélarinnar fyrir flugtak frá Santa Cruz



Að ofan má sjá mynd af flugstjóranum Quiroga sem var tekinn skömmu áður en vélin fór í loftið frá Santa Cruz í Bólivíu ásamt leikmönnum brasilíska fótboltaliðsins Chapecoense, mynd af báðum flugmönnunum og einnig mynd af áhöfninni sem var um borð en sú mynd var einnig tekin fyrir flugtak á flugvellinum í Santa Cruz.

Til stóð að brasilíska fótboltaliðið myndi breyta um flug og fara með leiguflugi til Medellín en brasilísk yfirvöld komu í veg fyrir það og var því eini valkosturinn að fljúga með LAMIA Bolivia.

Ekki er neitt enn vitað um orsök slyssins.

Myndir af flaki vélarinnar:









Flugritinn og hljóðritinn úr vélinni:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga